Föstudagur
14:00 Upphitun á Ráðhústorgi, tónlist og sölutjöld
Miðbærinn iðar af lífi og allir að hittast. Föstudagsfjörfiskar frá Skapandi sumarstörfum á ferðinni. Andlitsmálun fyrir alla krakka á Kaffi Költ.
Ein með öllu og kók í boði fyrir dælulykilhafa og aðra gesti.
14:00 - 18:00 Leikir á tjaldsvæðinu Hömrum
Minigolf, Frisbigolf. Risafótboltaspil.
16:00 - 18:00 Kirkjutröppuhlaup Sportvers og Arion banka
Fimleikafélag Akureyrar stendur fyrir þessum magnaða viðburði. Veitt eru verðlaun fyrir besta tímann karla, kvenna og 13 ára og yngri, flottustu búningana og stórbrotnustu tilþrifin. Verðlaunin eru ekki af verri endanum, en þau eru veitt af Puma, Hrím, Abaco, Nóa Síríus, Stell og Nova. Sigurvegarar fá pizzuveislu hjá Greifanum og miða á heitustu bíómyndirnar. Kók slekkur þorstann.
20:00 Óskalagatónleikar í Akureyrarkirkju.
Stórskemmtilegt. Eyþór Ingi organisti
heldur óskalagatónleika um ásamt Óskari Péturssyni stórsöngvara.
Tónleikarnir hafa laðað að sér mörg hundruð gesti enda algjörlega einstakir.
21:00 - 23:00 Trúbadorar á Kaffi Költ
Jói og Konni úr Dirty Birds sjá um rólega trúbadorastemmningu
21:00 Skemmtikvöld á Ráðhústorgi
Skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna.Fígúra, Rúnar Eff og Manhattan,, Mammúng hópurinn, Kristmundur Axel, Bjartur Elí, Óskar Axel, Ingó og Veðurguðirnir, Magga & Ragga, Róbert Freyr & Elísabet Metta, Dagur Sig og hljómsveit og fleiri.
Litbolti á flötinni við Samkomuhúsið
Gokart á svæði Bílaklúbbs Akureyrar
Tívolí við Skipagötu
Eftir miðnætti:
Alvöru diskó- og 80's 90's tónlist. Strákarnir í N3 ásamt Þórhalli í Pedro mæta með gömlu Dynheimaplöturnar Sjallaplöturnar 1929 diskana og alla töffarastælana frá nítjánhundruð sjötíu og áttatíu nítíu og eitthvað.
Aldurstakmark: 25 ár hér er verið að koma sér í gírinn fyrir Dynheimaballið sem er haldið kvöldið eftir.
Græni hatturinn: Hjálmar 
Stórhljómsveitin Hjálmar sér til þess að enginn sitji kyrr. Það er bara ekki hægt þegar seiðandi reggae-tónlistin hljómar. Eins og það er ekki hægt að valhoppa í fýlu.
Sjallinn
: Ingó og Veðurguðirnir
Loksins koma hinir kynngimögnuðu Ingó & Veðurguðirnir í Sjallann eftir langa fjarveru og keyra upp stuðið.
Einnig koma fram Kristmundur Axel, Óskar Axel og júlí Heiðar.
Kaffi Akureyri: Rúnar Eff og Steini
Rúnar Eff og Steini halda uppi mergjuðu stuði.
DJ Hilli tekur svo boltann á lofti og galdrar fram svo dansvæna tóna að fæturnir flippa út.
Kaffi Amor: Dj Beggi Bess
Frítt inn
Pósthúsbarinn
80's diskó



