Jump to Navigation

Laugardagur

10:30-13:30 Vatnasafarí að Hömrum.
Vatnaleikir við leikjatjörnina að Hömrum. Skemmtileg þrautabraut fyrir börn. Varúð: Hætt við sullumbulli.

11:00 Sæludagur í sveitinni - Möðruvellir í Hörgárdal
Blönduð dagskrá við þetta forna höfuðból sem engan svíkur. Traktoraspyrna, sveitafitness, reiðsýning og teymt undir börnum. Grill og gleði. 

13:00  Skoðunarferðir um Hof
Farið verður um alla króka og kima þessa glæsilega húss. Aðalsalir hússins, Hamraborg og Hamrar, verða skoðaðir og skyggnst verður á bak við tjöldin. Gestir fá að máta sig á sviðinu í Hamraborg, fara undir sviðið og alla leið upp undir rjáfur á tæknibrúnna yfir salnum. Saga hússins og starfsemi verður rakin í stuttu máli. Skoðunarferðin tekur um það bil klukkustund. Í samstarfi við Norðurorku.

13:00 Sæludagur í sveitinni - Hörgársveit
Hörgársveit býður gesti velkomna. Opnir blómagarðar, sveitamarkaður, upplestur á ljóðum okkar bestu skálda, opin fjós, kaffi og kruðerí.

14:00 Málaðu á bolinn
Sveina Björg textílkennari kennir þér að mála á bolinn, bolir seldir á staðnum. Kaffi Költ.

14:00 Í fótspor feðranna
Gengið um elsta bæjarhluta Akureyrar, Fjöruna, gömu Akureyri og allt norður að Torfunefi. Gangan hefst við Minjasafnið og endar í Sigurhæðum, húsi þjóðskáldsins Matthíasar Jochumssonar, þar sem boðið verður upp á hressingu. Leiðsögumaður er Gísli Sigurgeirsson Innbæingur og sögumaður með meiru. Gangan tekur um 1,5 klst. Ekkert þátttökugjald. Tilvalið tækifæri til að fræðast um sögu elsta bæjarhluta Akureyrar og áhugaverða einstaklinga sem þar hafa búið í gegnum tíðina.

14:00 - 18:00 Skemmtidagskrá á Ráðhústorgi
Einar Mikael töframaður, Mammúng hópurinn, Óskar Axel, Júlí Heiðar, Dagur Sigurðsson og hljómsveit, Kristmundur Axel, Bjartur Elí, Magga & Ragga, Róbert Freyr & Elísabet Metta. Dagskránni lýkur með því að gleðigandurinn Páll Óskar eys úr skálum stuðsins yfir lýðinn.

14:00 - 18:00 Opin mótorhjólabraut
Bílaklúbbur Akureyrar verður með opna mótorhjólabraut. Ef þú ert með hjól geturðu komið og tekið tímann í brautinni.

16:00 - 18:00 Upplestur úr Morgan Kane
Valdir kaflar úr bókunum um últratöffarann Morgan Kane á Kaffi Költ.

18:00 - 21:00  Ævintýraland að Hömrum.
Hoppukastalar, hjólabílar og bátar. Fribígolf og risafótboltaspil. Skemmtilegur ratleikur sem nær meðal annars inn í Kjarnaskóg. Eins gott að villast ekki. 

21:00 - 23:00 Trúbadorar á Kaffi Költ
Jói og Konni úr Dirty Birds sjá um rólega trúbadorastemmingu

21:00 Skemmtidagskrá á Ráðhústorgi
Fjöldi frábærra listamanna; Páll Óskar, Fígúra, Dagur Sig. og hljómsveit, Friðrik Dór, N3, Hjálmar, Mammung, Rúnar Eff og Manhattan

Litbolti á flötinni við Samkomuhúsið

Gokart á svæði Bílaklúbbs Akureyrar.

Tívolí við Skipagötu

Andlitsmálun í Kaffi Költ fyrir alla krakka.

 

Eftir miðnætti:

Græni hatturinn: Hjálmar 
Stórhljómsveitin Hjálmar hafa skipað fastan sess á Einni með öllu í mörg ár, enda stemmingin á Græna hattinum engu lík.


Oddvitinn: Dynheimaball 
Dynheimaballið eina sanna. Þar munu þeir Þórhallur í Pedró, Hólmar Svansson, Pétur Guðjóns, Dabbi Rún og Siggi Rún mæta með gömlu Dynheimaplöturnar og alla töffarastælana frá nítjánhundruð sjötíu og áttatíu og eitthvað. Já, við erum að tala um að draga fram axlapúðana. 
Aldurstakmark: 30 ár

Sjallinn
Stuðkóngurinn Páll Óskar tryllir lýðinn. Það er enginn sem kemst með tærnar þar sem Palli hefur hælana á dansskónum. Stuð af hjartans einlægni.
Sérstakur gestur: Friðrik Dór.

 

 

Rýmið, Hafnarstræti
Allir með öllum
16+ 
Fram koma: Óskar Axel, Júlí Heiðar, Kristmundur Axel, Ragga & Magga, Róbert Freyr & Elísabet Metta,  Bjartur Elí, 
DJ Óli Geir 
Eingöngu miðar við hurð, 1.500 kr.
Áfengis- og vímuefnalaus skemmtun.
Munið skilríkin, árið gildir

Kaffi Akureyri 23.00 - 01.30: Rúnar Eff og Halli 01.30 - 05.00: DJ Pétur Sveins

Kaffi Amour Plötusnúllinn Davíð Oddsson - Frítt inn

Pósthúsbarinn 80's diskó