Jump to Navigation

Sunnudagur

12:00-14:00 Lautarferð í Iðnaðarsafninu
Í ár ætlum við að fara í lautarferð í skógarlundinn við Iðnaðarsafnið eins og tíðkaðist á sjötta áratug síðustu aldar. Við vonumst til að sjá rauðköflótta dúka með lummum og ástarpungum, ef til vill breiðir fólk út teppi á grasið og drekkur kók í gleri í gegnum lakkrísrör. Flutt verður söngdagskráin „Stúlkan með lævirkjaröddina“ til heiður Erlu Þorsteinsdóttur.
 

13:00  Skoðunarferðir um Hof
Farið verður um alla króka og kima þessa glæsilega húss. Aðalsalir hússins, Hamraborg og Hamrar, verða skoðaðir og skyggnst verður á bak við tjöldin. Gestir fá að máta sig á sviðinu í Hamraborg, fara undir sviðið og alla leið upp undir rjáfur á tæknibrúnna yfir salnum. Saga hússins og starfsemi verður rakin í stuttu máli. Skoðunarferðin tekur um það bil klukkustund. Í samstarfi við Norðurorku. 

14:00 Sjallaspyrnan
Önnur umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu. Fer fram á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.

13:00 - 17:00 Útimarkaður
Á Ráðhústorgi verður allt mögulegt til sölu. Komdu og gerðu kaup. Mundu samt að það er ekki endilega kaupmaðurinn sem hefur hæst sem hefur bestu vörurnar.

15:00 Söngkeppni unga fólksins
HBI Vocalist Söngskóli í samstarfi við Greifann og Sambíóin. Heimir Bjarni Ingimarsson sér um keppnina og mætir með gítarinn. Keppt verður í tveim flokkum, 3-12 ára og 13-16 ára. Skráning og upplýsingar í síma 869-6634. Sigurvegarar fá að syngja á Sparitónleikum á sunnudagskvöldið, fá upptökutíma í hljóðveri, bíómiða og Greifapizzur.

16:00 - 18:00 Upplestur úr Morgan Kane
Lesnir valdir kaflar úr bókunum um Morgan Kane á Kaffi Költ.

17:00 Sumartónleikar í Akureyrarkirkju
Guðrún Ingimarsdóttir söngkona, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari  flytja tónlist eftir Bach, Händel, Mozart og fleiri, fyrir sópran, fiðlu og píanó. Aðgangur er ókeypis.

21:00 Sparitónleikarnir 
Að þessu sinni verða tónleikarnir á flötinni fyrir framan Samkomuhúsið. Þar verða flutt lög sem Óðinn Valdimarsson gerði ódauðleg og fram koma Rúnar Eff, Dikta, Helgi Björns og Reiðmenn vindanna. Einstaklega eftirminnilegir tónleikar þar hjörtun slá í takt . Flugeldasýning utan af Pollinum.

Eftir miðnætti:

Græni hatturinn: Bravó  
Bravó-bítlarnir halda uppi bítlastuði frameftir nóttu. Valinn maður í hverju rúmi enda var þessi hljómsveit valin til að hita upp fyrir Kinks þegar þeir léku í Austurbæjarbíói árið 1965 og gerðu allt vitlaust. Sérstakur gestur: Ari Jónsson úr Roof Tops.

Oddvitinn: SSSól 
Endurkoma ársins: SSSól með Helga Björns í fararbroddi tryllir lýðinn. Þetta máttu ekki láta fram hjá þér fara!

 

Sjallinn: Stórstjörnukvöld
Dikta, Jón Jónsson og Blaz Roca ljúka Einni með öllu 2011 með stæl, trukki og dýfu.

 

Kaffi Akureyri
00:00 - 04:00: Partý Sússi

Kaffi Amour
Dj Ármann Narly - Frítt inn
 

Pósthúsbarinn
80's diskó