Dagskrá
Föstudagur
Föstudagsfjörfiskar frá Skapandi sumarstörfum á ferðinni.
13.00-17.00 Gleði og gaman hjá Atlantsolíu
Atlantsolía mætir með pylsupottinn bíður upp á pylsur og fleira sem gleður á stöðinni sinni við Baldursnes.
16.00 Kirkjutröppuhlaup Andrésar andar.
Skráning á staðnum, tímataka, viðurkenningarskjöl og verðlaun fyrir besta tímann, flottasta búninginn og flottustu tilþrifin. Kynnir: Sigurbjörn Árni Arngrímsson.
18.00 - 22.00 Ævintýraland að Hömrum.
Hoppukastalar, hjólabílar, bátar og ratleikur.
20.00 Óskalagatónleikar í Akureyrarkirkju.
Sú hefð hefur skapast að Eyþór Ingi organisti í
Akureyrarkirkju heldur óskalagatónleika um Verslunarmannahelgina. Tónleikarnir hafa laðað að sér mörg hundruð gesti enda algjörlega einstakir og líkt og í fyrra verður Óskar Pétursson með honum.
20.00 Sögusigling með Húna
20.00 – 23.00 Sjallinn Micha Moor.
Aldurstakmark 14 ár. Fríar strætóferðir eftir ball.
21.00 Kanakvöld á Ráðhústorgi 
Skemmtidagskrá að hætti Kanans (FM 93,9 á Akureyri.) Kynnar: Siggi Gunnars og Einar Bárðarson.
Verðlaunaafhending fyrir kirkjutröppuhlaup Andrésar andar, Rúnar Eff og Manhattan, Einar Ágúst, Fígúra, Hljómsveitin Myrká og ELDGLEYPAR !!!
Go kart á paninu hjá Brim
Tívolí við Glerártorg og Skipagötu
Eftir miðnætti:
24.00 Dynheimaballið eina sanna á Vélsmiðjunni.
Dynheimaballið sem gengur líka undir nafninu ´80 ballið
verður haldið á Vélsmiðjunni og þar munu þeir Þórhallur í Pedró, Hólmar Svansson, Pétur Guðjóns, Dabbi Rún og Siggi Rún mæta með gömlu Dynheimaplöturnar og alla töffarastælana frá nítjánhundruð sjötíu og áttatíu og eitthvað. Aldurstakmark: 30 ár
Græni hatturinn: Hjálmar
Kaffi Akureyri:
22.00 - 01.00 - Einar Ágúst
01.00 - 05.00 - Partý Sússi
101 Akureyri: Dj Leibbi
Kaffi Amor: DJ Trouble
Pósthúsbarinn: Hot spring lovers DJ°s
Laugardagur
8.00-11.00 Barnaefni í þjónustuhúsinu að Hömrum
09.00 Röddin 2010
Sjöundu og síðustu áheyrnarprufurnar fyrir Röddina 2010 fara fram í Brekkuskóla, Laugargötu og stendur fram eftir degi.Undanúrslit munu síðan fara fram á Glerártorgi á sunnudag. Fjórir keppendur frá Norðurlandi komast áfram í undankeppnina í Reykjavík.
Nánari upplýsingar á www.roddin.is
10.00-14.00 Vatnasafarí.
Vatnaleikir við leikjatjörnina að Hömrum.
12.00 Mömmur og möffins í Lystigarðinum
Hádegistónleikar með Höllu og höfðingjunum þar sem gestir hafa með sér teppi og nesti ef þeir vilja. Þarna verður boðið upp á kaffi og Svala og seldar dásamlegar möffins sem ótal mömmur í bænum baka og skreyta. Einnig verður boðinn upp kökudiskur á fæti eftir Margréti Jónsdóttur leirlistakonu. Allur ágóði rennur til Fæðingadeildar FSA.
13.00 Greifatorfæran
Keppnin fer fram á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar. Þetta er fimmta umferð Íslandsmótsins í torfæru.
14.00 Komdu út að leika með Sveppa og öllum hinum
Við byrjum á flötinni fyrir framan leikhúsið þar sem við
haupum í skarðið og rifjum upp kött og mús og fleiri skemmtilega leiki, helst öll í alls konar búningum.
Svo förum við í skrúðgöngu inn á Ráðhústorg þar sem gleðin heldur áfram með Sveppa, Páli Óskari og mörgum fleirum.
14.00 Söguganga Minjasafnsins frá Sigurhæðum
- húsi Matthíasar Jochumssonar
Sögugangan hefst við Sigurhæðir þaðan verður haldið í Innbæinn að Minjasafnskirkju, leið sem Matthías gekk gjarnan sér til heilsubótar. Þaðan verður farið upp og norður Nonnnastíg, um Búðagil, Spítalaveg og Eyrarlandsveg aftur að Sigurhæðum. Í lok göngunnar verður boðið upp á kaffi, kakó og vöflur á Sigurhæðum. Þetta er létt ganga með Gísla Sigurgeirssyni húsbónda á Sigurhæðum.
18.00 -22.00 Ævintýraland að Hömrum.
Hoppukastalar, hjólabílar, bátar og ratleikur.
20.30 - 23.00 Froðuball á Slökkvistöðinni.
Dj Knutsen, Dj Stebbi og volume.is plötusnúðar. Aldurstakmark 14-16 ára. Fríar strætóferðir eftir ball. Miðaverð: 1000 kr. Forsala í Levi´s Glerártorgi.
Sigling með Húna til Hjalteyrar
21.00 Skemmtidagskrá á Ráðhústorg.
Hjálmar, Papar, Einar Ágúst, Rúnar Eff og Manhattan og fleiri.
Go kart á paninu hjá Brim
Tívolí við Glerártorg og Skipagötu
Eftir miðnætti:
Græni hatturinn: Hjálmar
Kaffi Akureyri:
22.00 - 01.00 - Einar Ágúst
01.00 - 05.00 - DJ Geir Flóvent
Pósthúsbarinn: DJ Rikki G
Sjallinn: Páll Óskar
101 Akureyri: Oculus & DJ Stebbi
Vélsmiðjan: Papar
Sunnudagur
12.00-13.00 Vor Akureyri í Iðnaðarsafninu
Undanfarnar tvær Verslunarmannahelgar höfum við rifjað upp sitthvað skemmtilegt úr fortíðinni. Heilsast með orðnum "sæll vinur" og "sæl vinan" og ekki hikað við að halda því fram að þetta og hitt væri fannntalega fínnnt. Við höfum sett rauðkál á pylsurnar og drukkið Vallash og kók í bauk. Tónlistin á þessum hádegistónleikum er líka ekta akureyrsk og þessu ætlum við svo sannarlega að halda áfram í ár.
14.00 Röddin 2010 á Glerártorgi
Hvaða keppendur komast áfram í úrslitakeppnina sem verður haldin í Reykjavík. Fjórir keppendur frá Norðurlandi komast áfram.
14.00 Afmæli Kjarnafæðis á Ráðhústorgi 
Ekta afmælisveisla með góðum mat og frábærum skemmtikröftum. Íslandsmeistarmótið í pylsuáti fer fram kl. 15.00 og veislustjórar verða þeir Sveppi og Villi.
14.00 Sjallaspyrnan
Fyrsta umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu. Fer fram á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
17.00 Líf og fjör í KA heimilinu
Latibær, Söngvaborg, Leikhópurinn vinir og ýmisr fleiri.
21.00 Sparitónleikarnir
Að þessu sinni verða tónleikarnir á flötinni fyrir framan Leikhúsið. Dikta, Hvanndalsbræður, Karlakór Akureyrar Geysir, Queen-tribute, Skítamórall og Ourlives munu, ásamt fjölmörgum öðrum, sumum sérlega litríkum tryggja að þessir tónleikar verða einstaklega eftirminnilegir. Flugeldasýning frá Leiruveginum.
Eftir miðnætti:
Græni hatturinn: Bravó
KA-heimilið: 16 ára ball með Micha Moor. Fríar strætóferðir eftir ball.
Pósthúsbarinn: Dj Biggi
Sjallinn: Dikta, Ourlives, Erpur
Vélsmiðjan: Skítamórall
Kaffi Akureyri: Partý Sússi og DJ Stebbi
101 Akureyri: Hip Hop Darri




