Fréttir
Skemmtileg og fjölsótt hátíð að baki. Ungir og aldnir nutu vandaðrar og fjölbreytilegrar dagskrár saman með bros á vör.
Við viljum þakka fyrir einstaklega vel heppnaða helgi þar fór saman mikið fjör og jákvætt andrúmsloft. Óvanalega lítið var um kærur, líkamsárásir og aðra neikvæða þætti og megum við þakka hvert öðru fyrir það.
Við aðstandendur hátíðarinnar þökkum fyrir okkur og vonumst til að sjá ykkur aftur að ári.
Hátíðin verður næst haldin dagana 2. - 5. ágúst 2012.




















