14 ára ball í Sjallanum, froðuball og 16 ára ball í KA heimilinu
Þrjú unglingaböll verða haldin um helgina. Það fyrsta í Sjallanum
á föstudagskvöldið þar sem plötusnúðurinn Micha Moor verður í aðalhlutverki. Ballið er frá 20.00 - 23.00 og er aldurstakmark 14 ár. Á laugardagskvöldið verður froðuball á Slökkvistöðinni. Þar spila Dj Knutsen, Dj Stebbi og volume.is. Aldurstakmark 14 - 16 ára. Hið árlega 16 ára ball verður svo í KA - heimilinu á sunnudagskvöldið. Það byrjar á miðnætti og stendur til 03.00. Boðið er upp á fríar strætóferðir að böllunum loknum.


