Jump to Navigation

Kirkjutröppuhlaupið

Kirkjutröppuhlaupið er fastur liður Einnar með öllu og er ætluð öllum, ungum sem og þeim sem eldri eru. Fyrirkomulagið er einfalt. Þeir sem vilja spreyta sig mæta við neðstu tröppu og svo er raðað upp og startað. Fyrstu keppendur fara af stað klukkan 16.00 og allir fá viðurkenningarskjöl með nafni og tíma. Veitt verða þrenn verðlaun; besti tíminn, flottasti búningurinn og flottustu tilþrifin.

Við hvetjum fólk á öllum aldri til að mæta, helst í skrautlegum búningum og taka kirkjutröppurnar með stæl og eigin stíl! Við búum stemmninguna til saman.

 

Það er Fimleikafélag Akureyrar sem ber hitann og þungann af Kirkjutröppuhlaupinu en vinningarnir eru ekki af verri endanum. Íþróttavörur frá Sportver og Puma, góðgæti frá Nóa-Síríus, pizzuveislur frá Greifanum, aðgöngumiðar á allar heitustu myndirnar í bíó og ýmislegt fleira. 

Það eru Arionbanki og Sportver sem eru aðalstyrktaraðilar Kirkjutröppuhlaupsins.