Jump to Navigation

Mörg hundruð möffins ... og myndir eftir krakka

Flest bendir til að Lystigarðurinn verði fullur af möffins í hádeginu á laugardaginn. Skemmtileg stemmning hefur skapast og út um allan bæ eru mömmur að skiptast á uppskriftum, prófa og smakka. Frumsýningin verður svo eins og áður segir í hádeginu á laugardaginn. Að auki verður svo uppboð; fimm flottar á fati - en þar getur fólk boðið í dýrindis kökudisk frá Margréti Jónsdóttur listakonu sem á verða fimm sérlega flottar möffins. Hljómsveitin Halla og höfðingjarnir munu sjá um tónlistina og svo væri voða gaman ef krakkar í bænum væru til í að teikna fallegar myndir sem  hægt er að setja í trén. Allur ágóði af sölunni rennur til Fæðingadeildar FSA.