Fréttir
Yfirbragð Verslunarmannahelgarinnar er mjúkt og elskulegt og við leggjum áherslu á að bæði bæjarbúar og gestir njóti lífsins og upplifi sanna Akureyrarstemmningu. Við byrjum á Kirkjutröppuhlaupi á föstudegi og endum á Sparitónleikum á sunnudagskvöld. Dagskráin verður fjölbreytt og skemmtileg; flottar hljómsveitir og fullt af skemmtiatriðum og á næstu dögum á margt eftir að bætast við.
Ótal margir hafa komið að undirbúningi hátíðarinnar og stærstu bakhjarlarnir eru Saga Capital, KEA, Norðlenska, Vífilfell og Kjarnafæði auk Akureyrarbæjar. Það er von okkar að helgin verði gleðileg, brosin mörg og minningarnar ljúfar.
- ‹‹
- 2 af 2





















