Jump to Navigation

Tjaldsvæðin

Að Hömrum verður lögð áhersla á fjölskylduvænt tjaldsvæði. Boðið verður uppá dagskrá ætlaða börnum og fjölskyldufólki til viðbótar þeirri dagskrá sem í boði er um allan bæ þessa daga. Að Hömrum verður bátaleiga, hoppukastalar minigolf, vatnasafari o.fl.

Á tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti verður gestahópurinn trúlega blandaðri. Bæði almennir ferðamenn innlendir og erlendir, sem leið eiga um Akureyri og svo þeir sem komnir eru aðallega til að taka þátt í hátíðarhöldunum um helgina. Miðað við blöndun tjaldgesta með mjög mismunandi þarfir og væntingar til dvalarinnar á tjaldsvæðinu þessa helgi verðum við að treysta á að allir séu tillitsamir og tilbúnir til að eiga saman góða helgi.

 
Athygli er vakinn á því að um verslunarmannahelgina gilda almennar umgengnisreglur  á  báðum tjaldsvæðunum og er væntanlegum gestum bent á að kynna sér þær á síðunni www.hamrar.is

Einnig eru tjaldstæði í boði hjá Bílaklúbbi Akureyrar á svæði félagsins við Hlíðarfjallsveg.