Upplýsingar
Það eru Vinir Akureyrar sem standa að Einni með öllu í samvinnu við Akureyrarstofu. Vinir Akureyrar er félag hagsmunaaðila í verslun og þjónustu og stærsti hluti kostnaðar er greiddur af fyrirtækjum í bænum, smáum og stórum sem vilja leggja sitt að mörkum til að búa til skemmtilega stemmingu í bænum. Alls eru það á annað hundrað fyrirtækja sem leggja í púkk og eru þannig beinir þátttakendur og stuðningsaðilar.
Forsvarsmenn félagsins eru Arinbjörn Þórarinsson veitingarmaður á Greifanum, Davíð Rúnar Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjallans og Nýja bíós og Sveinn Rafnsson veitingamaður á Kaffi Akureyri. Þeir sjá um alla framkvæmd ásamt Halldóri Óla Kjartanssyni verslunarmanni og Huldu Sif Hermannsdóttur Akureyrarstofu. Framkvæmdastjóri hátíðarinnar Einnar með öllu er Skúli Gautason.
Nánari upplýsingar:
Skúli Gautason 896-8412
skuli@einmedollu.is
Halldór Óli Kjartansson 849-5973
halldor@einmedollu.is




