Birna Karen á Einni með öllu 2024

Birna Karen Sveinsdóttir er 19 ára og er búin að vera stunda söng síðan hún var 14 ára gömul.
Núna stundar hún söngnám hjá Tónlistarskóla Eyjafjarðar og hefur komið fram á nokkrum tónleikum í skólanum og meðal annars á viðburðum á vegum Oddfellow.
Birna Karen er glæný í tónlistarbransanum og hlökkum mikið til að fá hana ásamt undirleikara til okkar á stóra sviðið á Sparitónleikunum!