Frábært veður alla helgina!

Það er engin lygi að besta veðrið er alltaf á Akureyri!

Veðurspáin fyrir helgina lítur frábærlega út, sem gerir hana fullkomna til að njóta Einnar með öllu! Sólríkur himinn á köflum og mildur hiti er tilvalinn tími til að vera utandyra og drekka í sig menningu og aðra viðrburði.

Hins vegar er alltaf skynsamlegt að vera viðbúinn öllum breytingum á veðri. Mundu að hafa með þér viðeigandi fatnað og búnað eins og léttan jakka fyrir svalari kvöld, húfu og vettlinga. Svo er alltaf sniðugt að hafa með sér teppi til að njóta á Skógardeginum eða á Sparitónleikunum.
Verum tilbúin með regnhlífarnar svo hægt sé að njóta þrátt fyrir smá regn á köflum. Ef við erum tilbúin fyrir hvað sem getum við notið Einnar með öllu til fulls!

Hlökkum til að taka á móti ykkur í blíðunni alla helgina!