Húlladúllan um Verslunamannahelgina

Laugardagurinn 3.ágúst
Húlladúlla verður á útisvæðinu hjá Sykurverk klukkan 14:00. Það er frítt fyrir alla og boðið verður upp á kökur og kræsingar í boði Sykurverks. Húlladúllan mun bjóða upp á stutta fjölskylduskemmtun og skellir sér svo í heljarinnar sirkusfjör þar sem allir húlla saman og læra einföld en svakalega flott húllatrix.

Sunnudagurinn 4.ágúst
Húlladúlla verður á Skógardeginum í Kjarnaskógi á Kirsuberjaflötinni (hjá hoppubelgnum) klukkan 14:00. Það er frítt fyrir alla í boði Kids Coolshop og þar mun Húlladúllan bjóða upp á skemmtiatriði og húllafjör. Hún verður með allskonar húllahringi, þar af nokkra risastóra, þá stærstu á Íslandi og aðra skreytta litríkum borðum. 

Húllum saman um Verslunarmannahelgina, ekki missa af þessari frábæru fjölskylduskemmtun!