KOMO á Einni með öllu 2024!

KOMO kemur til Akureyrar á Einni með öllu 2024!

KOMO veisluþjónusta sérhæfir sig skemmtilegum og öðruvísi réttum með street food þema að leiðarljósi. Réttirnir gleðja augað jafnt sem bragðlaukana.

"Okkar mantra er sú að matur sé eitt sterkasta sameiningartákn sem hægt er að hugsa sér, þegar við deilum góðum mat deilum við gömlum minningum og i leiðinni sköpum við nýjar minningar saman." - KOMO




   

Veisluþjónustan KOMO var á Götubitahátíðinni í ár. Áætlað er að um 50.000 gestir hafa komið á hátíðina og gerir það hátíðina með stærstu hátíðum landsins. Þetta árið vann KOMO til þrennra verðlauna og hefur þá KOMO unnið í heildina fjögur verðlaun á Götubitahátíðinni.

   

Við getum ekki beðið eftir að fá okkur bita hjá KOMO á Einni með öllu 2024!
Meira um KOMO má nálgast hér