Skemmtisigling Special Tours yfir Eina með öllu

SPECIAL TOURS mun leiða hópsiglingu á sunnudagskvöldið og kveikja á rauðum blysum frá Gúmmíbátaþjónustunni sem munu lýsa upp fjörðinn.

Ekki missa af þessari einstöku upplifun að sigla um Pollinn til miðnættis og horfa á flugeldasýninguna, sem hefst á miðnætti út á sjó.

Þetta er kjörin ferð fyrir alla minni sem og stærri hópa þar sem skemmtun er í fyrirrúmi.

Ferðin er einungis í boði á einni dagsetningu svo taktu sunnudaginn 4. ágúst frá og bókaðu kvöldsiglingu fyrir þig og/eða vinahópinn þinn núna!
Verð aðeins: 3.500 kr.

Brottför frá höfuðstöðvum Special Tours á Akureyri Oddeyrarbót 1, kl 22:30. Mæting 20 min fyrir brottför. Lengd 1,5-2 klst.

Frekari upplýsingar veitir Ríkarð í síma 560-8810 eða akureyri@specialtours.is