Skógardagurinn um Verslunarmannahelgina 2024

Nanna Rut Guðmundsdóttir (verslunarstjóri Nettó á Glerártorgi), Ingólfur Jóhannsson (framkvæmdastjór…
Nanna Rut Guðmundsdóttir (verslunarstjóri Nettó á Glerártorgi), Ingólfur Jóhannsson (framkvæmdastjóri Skóg­ræktarfélags Eyfirð­inga) og Ída Irene Oddsdóttir (frá Viðburðastofu Norðurlands)

Skógræktafélag Eyfirðinga, Vinir Akureyrar (Ein með öllu) og Nettó taka saman höndum og halda skógardaginn hátíðlegan um Verslunarmannahelgina!

Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi verður haldinn á Birkivelli sunnudaginn 4.ágúst.
Dagskráin byrjar klukkan 13:00 og mun standa frameftir degi.
Skógardagurinn hefur verið haldin með prompi og prakt síðustu ár og ætlum við okkur að bjóða uppá frábæra fjölskyldu dagskrá yfir Verslunarmannahelgina.
Fjölskyldan getur komið saman á einum fallegasta stað bæjarins, notið dagsins, tekið þátt í ýmsum viðburðum og upplifunum saman.



Í boði verður:
Sveppafræðsla með Guðríði Gyðu
Poppað popp yfir varðeldi og foreldrar geta bragðað sér á ketilkaffi í leiðinni
Hægt verður að tálga með Sólveigu Svarfdælingi,
Spari Spari tónleikar á Birkivelli þar sem Birkibandið kemur fram og spilar fyrir gesti og gangandi
Húlladúllan mæta á Kirsuberjaflötina (hjá hoppubelgnum) með Húllufjör þar sem allir krakkar geta tekið þátt og húllað saman!
Sápukúlur munu prýða svæðið!
Það verður hægt að gæða sér á ís frá Ísbúð Akureyrar en þau verða með ísvagn á svæðinu
Netto býður uppá ávexti handa öllum víðsvegar um svæðið!
Fornbílaklúbburinn mætir á svæðið með glæsilega bíla til sýnis
Krakkamót KA/Þórs í strandhandbolta á blakvellinum

 

Gott væri fyrir fjölskyldur að koma með teppi, viðeigandi klæðnar og smurt nesti til að allir geti notið sín í hvaða veðri sem er :)

ATH. Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar. Nánari tímasetningar verða setta inn þegar nær dregur.