Sparitónleikar Einnar með öllu 2024

Sparitónleikar á lokakvöldinu eru stærstu tónleikar hátíðarinnar. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 á Leikhúsflötinni!

Þar koma fram þekktustu listamenn landsins, hljómsveitir og upprennandi stjörnur. Hátíðinni lýkur svo með glæsilegri flugeldasýningu sem toppar kvöldið!

Kynnar kvöldsins:

Kata Vignis og DJ Lilja

Fram koma:

Herra Hnetusmjör, Prettyboitjokko, Kristmundur Axel, Birna Karen, Stjórnin, Páll Óskar, Saint Pete, Drottningar og hljómsveitin 7.9.13

Götubitar:

KOMO - Vefjan - Hangry Matarvagn - Silli kokkur - Dons Donuts - Ísvagninn

Tívolí:

Tvö tívolí verða opin alla helgina langt fram á kvöld

 

Eftirminnilegir tónleikar þar sem hjörtun slá í takt. Kynnar kvöldsins eru Kata Vignis og DJ Lilja sem sjá um að gera hátíðina ógleymanlega. Tvö tívolí verða á Leikhúsflötinni og opin allt kvöldið og ýmsir götubitar verða lagðir á flötinni til að sjá til þess að enginn verði svangur allt kvöldið.

Dagskráin endar á glæsilegri flugeldasýningu frá Björgunarsveitinni Súlum og smábátaeigendur tendra upp himininn með blysum frá Gúmmíbátaþjónustu Norðurlands.

Við mælum með að mæta snemma og næla sér í girnilega götubita fyrir sýninguna. Skemmtum okkur vel saman á Sparitónleikunum!