Sparitónleikar Einnar með öllu 2024

Sparitónleikar Einnar með öllu voru algjörlega geggjaðir. Fram komu Herra Hnetusmjör, Prettyboitjokko, Kristmundur Axel, Birna Karen, Stjórnin, Páll Óskar, Saint Pete, Drottningar og hljómsveitin 7.9.13 og skemmtu áhorfendum allt kvöldið og mikil aðsókn var í tívolíð á svæðinu. Matarvagnar komu sér fyrir á flötinni og gátu gestir gætt sér á ýmis kræsingum allt kvöldið. Flötin var stappfull af fólki á öllum aldri.


Kvöldið endaði svo með glæsilegri flugeldasýningu í takt við tónlist. Hér fyrir neðan eru myndir frá kvöldinu sem að Hilmar Friðjónsson tók.