Sumarkjóla og freyðivínshlaup í Kjarnaskógi!

JÁ - þið lásuð rétt! Dagskrá helgarinnar fer af stað með alvöru veislu!
Sumarkjóla og Búbbluhlaup verður haldið í Kjarnaskógi miðvikudaginn 31.júlí kl 17.00

20.ára aldurstakmark er í hlaupið!
Nú er heldur betur rétti tíminn til þess að draga fram sumarkjólinn og/eða sumarfötin sem þú hefur ekki náð að nota í sumar!
Hisst verður á planinu við Kjarnakot, eina sem þú þarft að taka með er ísköld 750ml flaska af freyðivíni (áfengt/óáfengt), grípa glas með og alls ekki gleyma góða skapinu!
Hvetjum öll til þess að mæta, allir fara á sínum hraða! Labb, hlabb eða hlaup allt leyfilegt - 1 hringur er ca 2.2km!

*Þau sem vilja taka lengri vegalengd geta því farið fleiri hringi.

Sjáumst hress í Kjarnaskógi miðvikudaginn 31.júlí í sumardressinu og með búbblur í hönd!